Refund policy
Skilmálar
Verslun og vefverslun FOK er rekin af Vesturgarði sf KT 680188-1819 vsk númer 04339
Skilafrestur
Viðskiptavinur hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því skildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í upprunalegu ástandi. Kvittun fyrir kaupum þarf að fylgja með. Kostnaður við að skila vörunni s.s. sendingarkostnaður greiðist af viðskiptavini og er hann skráður sem slíkur á reikningi. Við bendum viðskiptavini á að hafa samband við verslun áður en varan er endursend, með símtali eða tölvupósti á fok@fok.is. Útsöluvöru er ekki hægt að skila.
Galli
Ef viðskiptavinur kaupir gallaða vöru í vefverslun FOK er boðið upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs, allt eftir því sem við á hverju sinni. Það fer eftir atvikum eða eðli gallans hvaða leið er valin. Við leysum málið í sameiningu.
Afgreiðsla pantana
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og kostur er, í flestum tilfellum samdægurs eða næsta virka dag. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og áskilur FOK sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð á vefverslun. Öll verð á vefversluninni eru með virðisauka og allir reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
FOK heitir kaupanda fullum trúnaði varðandi þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskipti. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhendar þriðja aðila.
