Létt rakakrem sem samanstendur af útdráttum úr villtum jurtum í mismunandi lífrænum olíum, sem gefur húðinni þau næringarefni sem hún þarfnast. Jurtirnar eru ýmist tíndar á Íslandi eða í Pyrenea fjöllunum í suður Frakklandi.
Normal – dry:
Kremið er gert úr avókadó-, möndlu- og argan- olíu blöndu sem gefur mjög góðan raka og viðheldur teigjanleika húðarinnar. Að auki er í kreminu maríustakkur sem er góður til að viðhalda hormónajafnvægi, eplamynta og sigurskúfur sem eru rík af andoxunarefnum. Þessi blanda hjálpar einnig við collagen framleiðslu húðarinnar. Einnig er í kreminu E vitamin sem hjálpar húðfrumum að viðhalda raka, útdráttur af morgunfrú sem jafnar húðlit og appelsínuberki sem veitir vörn gegn UV geislum sólarinnar. Lyktarefni, örlítið af bergamot og mandarínu ilmkjarnaolíum.
Normal – oily:
Kremið inniheldur vínberjakjarna-, jójóba- og arganolíu. Blandan er mjög rakagefandi án þess að vera of olíukennd, að auki er jójóba olían góð til að koma á jafnvægi í fitu framleiðslu húðarinnar. Jurtirnar sem notaðar eru í kremið eru fjallagrös, vallhumall, sigurskúfur og einberjarunni sem gefa líka mikinn raka, styrkja og auka blóðrásina til húðarinnar. Í kreminu er E vitamin sem hjálpar húðfrumum að viðhalda raka í lengri tíma, útdráttur af morgunfrú sem jafnar húðlit og appelsínuberki sem sem veitir vörn gegn UV geislum sólarinnar. Lyktarefni, örlítið af bergamot og mandarínu ilmkjarnaolíum.