
HLÝ FYRIR ALLA KRAKKA
Þessi klassíska ZO•ON úlpa hefur haldið hita á krökkunum okkar í meira en áratug. Klaki státar af vatnsheldu Drykidz-efni og léttu vattfóðri sem gerir krökkunum kleift að leika sér úti án þess að hafa áhyggjur af kuldabola. Þessi flík hefur alltaf notið mikilla vinsælda, enda gæðavara á góðu verði. Ekki skemmir fyrir að stillanlegar ermarnar stækka um stærð með barninu og endurskinsmerki veita aukið öryggi úti við.
- Vind- og vatnshelt Drykidz-efni sem andar
- Létt pólýester-fóður einangrar vel
- Hágæða gerviloðkragi sem má taka af
- Endurskin að framan, aftan og á ermum